Hundurinn hefur verið félagi mannsins í gegnum árþúsund og þar með lagað sig að honum. Engu að síður hafa hundar sínar eigin þarfir þegar kemur að atferli og næringu. Að þekkja og virða þessar þarfir tryggir góða heilsu og vellíðan hundsins.

Kettir eru heillandi dýr. Þeir eiga auðvelt með að aðlagast hversdagslegu umhverfi okkar mannanna en hafa þó sínar eigin þarfir hvað snertir atferli og næringu. Að þekkja og virða þessar þarfir tryggir heilbrigði og vellíðan kattarins.

Health Nutrition fóðrið frá Royal Canin inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, í nákvæmlega ákvörðuðum hlutföllum, sem stuðla að velferð og heilbrigði sérhvers dýrs til lengri tíma, í samræmi við aldur, stærð, lífeðlislega eiginleika og tegund.

Í yfir 40 ár hefur Royal Canin unnið hörðum höndum að nýsköpun í góðu samstarfi við ræktendur og dýranæringarfræðinga. Þannig höfum við náð að búa til dýrafóður sem uppfyllir allar næringarþarfir hunda og katta.

Royal Canin > Health Nutrition > Nálgun Royal Canin > Markmiðin með Health Nutrition

Markmiðin með Health Nutrition

Markmiðin með Health Nutrition

Fjögur markmið Health Nutrition

Þökk sé vísindalegum rannsóknum hafa nú forvarnarþáttur og í sumum tilvikum læknandi áhrif bæst við hin hefðbundnu markmið næringar, þroska, viðhalds og orku. Þessar nýju víddir marka upphaf Health Nutrition fóðursins.

Prenta Senda vini aA+ Aa-

Næring hefur fjögur markmið

Þróun og viðhald líkama: Amínósýrur, steinefni, snefilefni, vítamín og fitusýrur bregðast við grundvallar næringarþörfum fyrir þróun og viðhald líkamans.

Orkugjöf: Fituefni (lípíð) og kolvetni eru helstu orkugjafar hunda. Kettir þurfa líka á próteinum að halda fyrir orkuefnaskipti sín.

Næring og forvarnir: Sum næringarefni í matarskammtinum (andoxunarefni, bætiefni, trefjar, nauðsynlegar fitusýrur o.s.frv.) vinna gegn nýrnasjúkdómum, meltingarvandamálum og öldrunaráhrifum.

Næring og umhirða: Bætt er við tilteknum næringarefnum og magn annarra takmarkað til að styðja við meðferð eða bataferli. Þannig er mörgum gæludýrum hjálpað við að ná sér af veikindum.