Hundurinn hefur verið félagi mannsins í gegnum árþúsund og þar með lagað sig að honum. Engu að síður hafa hundar sínar eigin þarfir þegar kemur að atferli og næringu. Að þekkja og virða þessar þarfir tryggir góða heilsu og vellíðan hundsins.

Kettir eru heillandi dýr. Þeir eiga auðvelt með að aðlagast hversdagslegu umhverfi okkar mannanna en hafa þó sínar eigin þarfir hvað snertir atferli og næringu. Að þekkja og virða þessar þarfir tryggir heilbrigði og vellíðan kattarins.

Health Nutrition fóðrið frá Royal Canin inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, í nákvæmlega ákvörðuðum hlutföllum, sem stuðla að velferð og heilbrigði sérhvers dýrs til lengri tíma, í samræmi við aldur, stærð, lífeðlislega eiginleika og tegund.

Í yfir 40 ár hefur Royal Canin unnið hörðum höndum að nýsköpun í góðu samstarfi við ræktendur og dýranæringarfræðinga. Þannig höfum við náð að búa til dýrafóður sem uppfyllir allar næringarþarfir hunda og katta.

Royal Canin > Fóður > Kisur > Feline Breed Nutrition

Feline Breed Nutrition

Prenta Senda vini aA+ Aa-

Royal Canin hefur ávallt miðað framleiðslu sína á kattafóðri við ólíka eiginleika katta: aldur, lífsvenjur og næmi. Síðustu tíu ár hefur Royal Canin aukið enn úrvalið með því að þróa vöruflokk sem er eingöngu fyrir hreinræktaða ketti.

Persian, Siamese, Maine Coon, British Shorthair, Sphynx…

Einstakar kattategundir sem eiga skilið einstakt fóður.

Mikil þekking rannsókna- og þróunarsviðs Royal Canin auk náinnar samvinnu við breiðan hóp ræktenda hefur gert fyrirtækinu kleift að setja á markað fóðurköggla sem eru sérhannaðir fyrir hverja tegund fyrir sig.