Hundurinn hefur verið félagi mannsins í gegnum árþúsund og þar með lagað sig að honum. Engu að síður hafa hundar sínar eigin þarfir þegar kemur að atferli og næringu. Að þekkja og virða þessar þarfir tryggir góða heilsu og vellíðan hundsins.

Kettir eru heillandi dýr. Þeir eiga auðvelt með að aðlagast hversdagslegu umhverfi okkar mannanna en hafa þó sínar eigin þarfir hvað snertir atferli og næringu. Að þekkja og virða þessar þarfir tryggir heilbrigði og vellíðan kattarins.

Health Nutrition fóðrið frá Royal Canin inniheldur öll nauðsynleg næringarefni, í nákvæmlega ákvörðuðum hlutföllum, sem stuðla að velferð og heilbrigði sérhvers dýrs til lengri tíma, í samræmi við aldur, stærð, lífeðlislega eiginleika og tegund.

Í yfir 40 ár hefur Royal Canin unnið hörðum höndum að nýsköpun í góðu samstarfi við ræktendur og dýranæringarfræðinga. Þannig höfum við náð að búa til dýrafóður sem uppfyllir allar næringarþarfir hunda og katta.

Giant (> 45kg)

Prenta Senda vini aA+ Aa-
giant

Royal Canin notar heitið risavaxnir hundar (GIANT) um hunda sem eru þyngri en 45 kíló fullvaxnir.

Fóðrið er bæði sérsniðin næring og ekki síður öryggisráðstöfun.

Stærð og lögun kögglanna frá Royal Canin hentar óvenjustórri líkamsbyggingu þessara hunda fullkomlega.

Kögglar sem hæfa mjög stórum hundum eru hvatning fyrir þá til að tyggja og hægja þannig á fæðuneyslu.

ROYAL CANIN GIANT Size Health Nutrition fyrir risavaxna hunda sér þeim fyrir einstakri heilsunæringu sem svarar þörfum þeirra miðað við stærð, aldur, hreyfingarstig og lífeðlisfræðilegt ástand.